Skipulagsvefur fyrir mögulegt framboð um beint lýðræði
Þessi vefur er ætlaður til nota fyrir skipulagningu og hugmyndasmíð til að sýna fram á að beint lýðræði er mögulegt í nútímasamfélagi, og berjast fyrir því sem eðlilegu stjórnunarfyrirkomulagi.
Hugmyndirnar sem hér eru settar fram eru tillögur, og á þessu stigi er flestallt opið.
Það sem ekki er hægt að semja um er eftirfarandi:
Markmiðið er að koma á fót samtökum sem nota kosti netsins til að gera beint lýðræði auðvelt og þægilegt í notkun. Það sem þarf til að gera þetta mögulegt er amk. tvennt:
Vel úthugsað plan sem tekur til allra hliða málsins, allt frá innri hugsun og strúktúr yfir í hvernig best sé að koma þessari hugsun á framfæri til sem flestra.
Uppsetning og rekstur hugbúnaðar sem nota má í pólitíska ákvarðanatöku yfir netið.
Eflaust eitthvað fleira, dettur þér eitthvað í hug?
Meginmálefnið er beint lýðræði. Allt annað er umsemjanlegt, og verður það til frambúðar. Hér er ekki um að ræða stjórnmálaflokk í hefðbundinni merkingu, heldur nýtt stjórnkerfi. Viðbúið er að flokkar muni myndast og starfa innan kosningakerfisins. Slíkt þýðir ekki að markmiðið hafi misheppnast.
Starfsemi félagsins verður að vera með lýðræðlegum hætti.
Þessi Wiki er öllum opin til að bæta við og breyta í þágu beins lýðræðis á Íslandi.
Smelltu á Register í efra vinstra horninu og skráðu þig inn
Farðu á síðuna sem þú vilt breyta og smelltu á Edit takkann í efra hægra horninu
Vistaðu með einhverjum af Save tökkunum neðst
Nánari Wiki leiðbeiningar geturðu fundið hér að neðan.
Ef þig langar að þýða og búa til einfaldari leiðbeiningar þá er það meira en velkomið.
Þú getur alltaf komist aftur á þessa síðu með því að smella á Lydraedi eða Lydraediweb, annaðhvort í vinstri valmynd eða í brauðmolaslóð fyrir ofan efnissvæði.