Það má gera greinina sterkari með því að gefa okkur fyrirram við hverja við erum að tala.

Hvar er fólk statt sem við viljum laða að þessu starfi okkar?

-- GudRa - 12 Jan 2009

Beint lýðræði er raunhæfur kostur - www.lydraedi.is
eða
Vinnum öll saman að beinu lýðræði - www.lydraedi.is

Vefur um endurbætur í framkvæmd lýðræðisins.

Við erum að leita leiða til að skapa bestu umgjörð um beint lýðræði á Íslandi.

(ekki nota orðið hindra kannsek frekar óðarfi að finna upp hjólið og náum lengra og dýpri pælingar saman) -- Að reyna að hindra að margir séu að finna upp sama hjólið á sama tíma heldur nýta krafta allra eins vel og hægt er.

(Þessi klausa er svoltið löng, hagsmunategslapunkturinn er sennilega mikilvægasta röksemdin fyrir beinu líðræði ) -- Við búum í dag við vanhæfa ríkisstjórn, vanhæft Alþingi og vanhæfa yfirstjórn fjármála Íslands. Þessir aðilar virðast ekki ætla að gera neitt af viti í þeim efnahagslegu hörmungum sem yfir okkur hafa dunið. Auðvelt er að rökstyðja að vanhæfið snúist ekki eingöngu um þá sem í dag sitja á þessum stöðum heldur sé kerfið sjálft ástæða og trygging fyrir þessu vanhæfi. Innri hagsmunatengsl á milli allra stjórnunarhliða á Íslandi eru svo gríðarlega mikil að allir virðast jafn vanhæfir til að taka á vandanum.

Við þurfum því breytt stjórnkerfi fyrir Ísland. Nýja stjórnarskrá og tryggingu fyrir því að völdin séu alltaf hjá fólkinu. Besta leiðin til að tryggja þetta er með beinu lýðræði. Alvöru lýðræði þar sem þjóðin sjálf tekur allar ákvarðanir sem henni finnst skipta máli.

(Beint líðræði gefur stórkostlega möguleika en við verðum að skoða kosti og galla þeirra lausna sem við höfum úr að velja. Stundum þarf að sætta sig við ákveðið óhagræði til að tryggja öryggi og þátttöku. Þegar vafi leikur á hvaða kostur sé bestur þarf að taka líðræðið. Líklegt er að það fyrirækumlag sem við höfum á þessum hlutum kosti ekkert minna en það kerfi sem við höfum í dag. En við viljum truggja að allt verði gert til að hver einast borgari geti tekið virkan þátt í öllum ákvörðunum sem skipta máli.)

Allar úrtöluraddir um að beint lýðræði sé dýrt, illframkvæmanlegt og þar fram eftir götunum eru bull. Hreint bull. Tæknilega séð eru engin vandamál sem ekki eru leysanleg, það geta margir okkar færustu forritara og nethugsuða vottað. Það sem er flókið er að finna réttu hugsunina og réttu aðferðirnar til að gera fólki eins einfalt og þægilegt og hægt er að fylgjast með málum, móta sér skoðun og greiða atkvæði. Vissulega verður gott kosningakerfi fyrir beint lýðræði ekki hrist fram úr erminni á einum eftirmiðdegi en það er vel framkvæmanlegt, nóg eigum við af hæfu fólki til að manna slíkt verk.

(Flott, hressilegt og kvetjandi) Flokkakerfið er úrelt afurð 19. aldar hugsunar með plástrum 20. aldarinnar. Við þurfum nýja sýn, nýja hugsun sem virkjar almenning, þjóðina alla og gerir okkur öll ábyrg fyrir örlögum okkar. Við megum aldrei aftur leyfa fámennum hópi valdasjúkra kerfiskalla og fjárglæframanna að koma okkur á kaldan klaka og við þurfum öll að taka höndum saman til að losa okkur úr þessari úlfakreppu.

Í dag eru fjölmargir hópar að vinna að hugmyndum um beint lýðræði og þó ákveðin skörun sé á milli hópanna þá er vinnan of dreifð þessa stundina. Ég vil því hvetja alla sem hafa einlægan áhuga á að vinna að því að koma á beinu lýðræði á Íslandi að sameinast um þessa vinnu, bæði á netinu og í raunheimum.

Óformlegur hópur sem ég er hluti af hefur sett upp ýmis veftól til að auðvelda þessa samvinnu og er þau að finna á http://lydraedi.is - Ég hvet alla sem vilja vinna beinu lýðræði brautargengi til að fara á http://lydraedi.is og skrá sig þar á póstlista eða umræðusvæði til að taka þátt í að byggja upp nýtt þjóðfélag, Ísland sem við getum verið stolt af!

Sameinuð stöndum við, sundruð föllum við.

Topic revision: r1 - 12 Jan 2009 - 03:09:52 - GudRa
 
Copyright © by the contributing authors. All material on this collaboration platform is the property of the contributing authors.
Ideas, requests, problems regarding Foswiki? Send feedback