Tillaga að tæknilegu skipulagi kosningakerfis
Kjósendaviðmót: Vefrænt oftast nær líklega en hugsanlega boðið upp á sérstök kerfi sem sinna samskiptum við kjósendur. Kerfin þurfa að standast samskiptastaðla kosningaþjóna.
Kjörnóða (Rafrænn kjörstaður)
Kosningaþjón: Sér um samskiptin við kosningaviðmót. Staðfestir auðkenni kjósandans, og tryggir að atkvæði hafi ekki verið breytt "in transit". Skoða OTR (Off The Record messaging) í þessu sambandi.
Atkvæðagrunnur: Vistun atkvæða með málsnúmerum, landshlutauppruna og dulkóðuðum auðkennum kjósenda. Yfirkjörnefnd hefur einnig val um að dulkóða atkvæðagreiðsluna með sérstökum public key kjörnefndar til að fyrirbyggja atkvæðasölu með staðfestingu atkvæða til þriðja aðila. Dulkóðun atkvæða í grunni getur einnig þjónað þeim tilgangi að koma í veg fyrir ótímabærar birtingu niðurstaðna sem hefður áhrif á kosninguna (allir sitji við sama borð hvað upplýsingar varðar þegar þeir kjósa óháð tímaröð). Engin bein skrifréttindi eru veitt í atkvæðagrunn. Aðeins innbyggt stored procedure tekur við atkvæðum frá kosningaþjóni og uppfyllir þær jafnvægiskúnstir sem þarf til að tryggja réttmæti atkvæðis. Dulkóðun Yfirkjörnefndar gæti t.d. farið fram hér.
Samskiptaþjónn (eða Samskiptanóða): Forrit sem les atkvæði frá öðrum Kjörnóðum og sendir Kosningaþjóni til ritunar í atkvæðagrunn. Samskiptaþjónn sér einnig um að skila aflestri atkvæða frá atkvæðagrunni til annarra samskiptaþjóna. Kjörnefnd ákveður hvaða kjörnóðum samkiptaþjónninn les frá en hvaða kjörnóða sem er getur beðið um aflestur af þessari. (Skoða OTR í þessi samskipti).
Yfirkjörstjórn
Talning (Úrvinnsla og birting atkvæða): Þetta er sérstakt kerfi kjörstjórnar þar sem hún notar private key til afkóðunar atkvæða hafi hún átt sér stað. Kerfið raðar niðurstöðum samkvæmt kúnstarinnar reglum í samræmi við kosningareglur / löggjöf. Niðurstöðurnar eru vistaðar í sérstökum grunni sem er öllum frjáls til aflestrar.
--
OlafurGardarsson - 07 Feb 2009